Innlent

Fimm mánaða skilorð fyrir árás á dyravörð og lögregluþjón

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms. Mynd/ GVA.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms. Mynd/ GVA.
Hæstiréttur dæmdi í dag Teit Guðmundsson í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið dyravörð á veitingastaðnum Drífanda í Vestmannaeyjum í andltið með þeim afleiðingum að hann missti framtönn. Þá er maðurinn jafnframt dæmdur fyrir að hafa veist með ofbeldi og hótunum að lögreglumanni og hótað honum lífláti. Með dómnum var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur staðfestur.

Teitur neitaði því fyrir dómi að hafa ráðist á dyravörðinn en kvaðst hafa lent í útistöðum við lögreglu þar sem hún hafi farið mannavillt. Talið var sannað með framburði vitna að sekt Teits væri sönnuð. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árás Teits á dyravörðinn var algerlega tilefnislaus og ósvífin og jafnframt að hótun hans gegn lögreglumanninum var gróf og til þess fallin að vekja hjá honum ótta um líf hans og heilsu. Vegna þess að rannsókn málsins dróst var refsingin skilorðsbundin.

Þá var Teitur dæmdur til að greiða dyraverðinum 660 þúsund krónur í bætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×