Innlent

Steingrímur og Svein ræða lánakjör í Svíþjóð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug út til Svíþjóðar í morgun ásamt Svein Harald Øygard seðlabankastjóra til þess að ræða lánasamninga sem Norðurlöndin hafa heitið okkur.

Jón Sigurðsson, formaður viðræðunefndar íslenska ríkisins um gjaldeyrislánasamninga, er einnig með í för en í þessari lotu er rætt við hóp sem samanstendur af hinum Norðurlöndunum fjórum. Það eru semsagt Noregur, Finnland, Danmörk og Svíþjóð en Svíar fara fyrir þessum hópi.

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir ráðgjafi fjármálaráðherra segir að um sé að ræða lán sem vinaþjóðir Íslands hafi heitið að veita okkur. Hún segir ennfremur að þeir félagar komi heim á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×