Innlent

Tíu mánaða fangelsi fyrir að ljósrita peningaseðla

Hæstiréttur staðfesti í dag 10 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Agnari Víði Bragasyni fyrir peningafals og fíkniefnabrot.

Við handtöku Agnars Víðis, í apríl árið 2007, fundust á honum 20 ljósritaðir tvö þúsund króna seðlar. Að auki fundist á honum 2,2 grömm af fíkniefnum.

Við yfirheyrslu kvaðst Agnar Víðir hafa ætlað að nota seðlana í pókerspili með vinum sínum, en sagði ætlun sína aldrei hafa verið að koma þeim í almenna umferð. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í maí 2008 að það hafi einmitt verið fyrirætlun hans og dæmdi manninn með hliðsjón af sakarferli hans í 10 mánaða fangelsi.

Agnar Víðir áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar sem eins og áður sagði staðfesti dóm héraðsdóms í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×