Lögregla veitir Yaris eftirför Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 19. júlí 2009 19:28 Lögregla eltir Yaris bifreið
Allavega sex lögreglubílar og að minnsta kosti eitt mótorhjól veita nú grárri Yaris bifreið eftirför á Vesturlandsvegi að sögn tveggja vegfarenda sem höfðu samband við fréttastofu. Ekki er vitað hvort um er að ræða Yaris bifreið sem stolið var í dag á Shell bensínstöð í Árbæ. Lögregla gat ekki gefið aðrar upplýsingar en þær að verið væri að veita Toyota Yaris bifreið eftirför. Varðstjóri sagði ekki vitað hvort þetta væri hinn stolni Yaris, þetta væri allavega Yaris. Kona búsett í Dúfnahólum hafði samband við fréttastofu og sagðist hafa séð um sex lögreglubíla veita grárri Yaris bifreið eftirför upp Fálkabakka og upp í Vesturhóla en hægt er að keyra þá götu í hring. Þrír bílar fóru því sunnan megin við Vesturhóla og þrír norðanmegin. Konan missti í skamma stund sjónar á bílunum að undanskildum einum lögreglubíl sem beið við Dúfnahóla. Konan sá síðar Yaris bifreiðina koma á fleygiferð frá norðanverðum Vesturhólum og lögreglubíla á eftir. Yaris bifreiðin ók þaðan niður Höfðabakka og hefur líklegast farið þaðan út á Vesturlandsveg. Nokkrir lögreglubílar fylgdu bifreiðinni Höfðabakkann en aðrar fóru aftur niður Fálkabakka í átt að Reykjanesbraut líkt og viðbúið væri að ökumaður Yaris bifreiðarinnar kæmi þangað niður Ártúnsbrekku. Bifreiðin hélt þess í stað út á Vesturlandsveg en ekki er vitað hvar bifreiðin og lögreglubílarnir eru staðsett núna en við flytjum fréttir af því um leið og þær berast.
Tengdar fréttir Eigandi Yaris bifreiðar: „Þekki þjófinn hvar sem er“ Eigandi Toyota Yaris bifreiðar sem stolið var meðan hann borgaði fyrir bensín á Shell bensínstöðinni í Árbæ fyrr í dag, segist sjaldan hafa orðið jafn hissa á ævi sinni og þegar hann sá bíl sinn reykspóla í burtu. Hann segist mundu þekkja þjófinn hvar sem er. 19. júlí 2009 17:14 Bíl stolið meðan eigandinn borgaði fyrir bensín Fólksbíl var stolið við bensínstöð Shell við Hraunbæ um tvöleytið. Á meðan að eigandi bílsins var inni að greiða fyrir bensín fór maður inn í bílinn og ók honum á brott. 19. júlí 2009 14:41 Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira
Eigandi Yaris bifreiðar: „Þekki þjófinn hvar sem er“ Eigandi Toyota Yaris bifreiðar sem stolið var meðan hann borgaði fyrir bensín á Shell bensínstöðinni í Árbæ fyrr í dag, segist sjaldan hafa orðið jafn hissa á ævi sinni og þegar hann sá bíl sinn reykspóla í burtu. Hann segist mundu þekkja þjófinn hvar sem er. 19. júlí 2009 17:14
Bíl stolið meðan eigandinn borgaði fyrir bensín Fólksbíl var stolið við bensínstöð Shell við Hraunbæ um tvöleytið. Á meðan að eigandi bílsins var inni að greiða fyrir bensín fór maður inn í bílinn og ók honum á brott. 19. júlí 2009 14:41