Kreppan dýpkar umtalsvert frestist Helguvík 1. október 2009 18:36
Sérfræðingar fjármálaráðuneytis telja að ef Helguvíkurframkvæmdir frestast verði samdráttur í efnahagslífinu þrjú prósent á næsta ári en ekki 1,9 prósent. Samtök atvinnulífsins hóta því að leita til dómstóla afturkalli umhverfisráðherra ekki úrskurð sinn um Suðvesturlínu, sem þau telja ólögmætan og setja stöðugleikasáttmálann í uppnám.Samtök atvinnulífsins segja að úrskurður Svandísar Svavarsdóttur muni tefja framkvæmdaáform svo mörgum mánuðum skiptir. Sjálf telur Svandís að töfin verði 3-4 mánuðir en minnir á að margt annað sé óklárt varðandi Helguvík, bæði fjármögnun og orkuöflun.Samtök atvinnulífsins skoruðu á hana í morgun að afturkalla úrskurðinn. Að öðrum kosti myndu þau bera fram kvörtun við umboðsmann Alþingis og eða leita leiða til að fá úrskurðinum hnekkt fyrir dómstólum. Þau telja úrskurðinn ólögmætan og færa fyrir því tvennskonar rök: Að hann hafi verið kveðinn upp löngu eftir að tilskilinn tímafrestur var útrunninn og að lagareglur um málsmeðferð og andmælarétt hafi ekki verið virtar.Í bréfi, sem einnig er sent forsætisráðherra, minna samtökin á það loforð ríkisstjórnarinnar í stöðugleikasáttmálanum að greiða götu framkvæmda vegna álvers í Helguvík og að engar hindranir yrðu af hálfu stjórnvalda eftir 1. nóvember.Þegar Svandís var í hádeginu spurð um fullyrðingar Samtakanna um ólögmæti úrskurðarins, og að hann bæri að hunsa, svaraði hún að það væri ekki skynsamlegt að setja undir sig haus og leggjast í skotgrafahernað.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira