Harðar deilur um Icesave-samninginn 19. júní 2009 06:00 Margir hafa mótmælt Icesave samkomulaginu undanfarna daga. Mynd/Vilhelm
Skrifi Alþingi undir Icesave-samninginn verða það afdrifaríkustu mistök í sögu þjóðarinnar. Þetta fullyrða fulltrúar Indefence-hópsins svokallaða, og vísa í þrjú lögfræðiálit sér til stuðnings, sem þeir segjast hafa látið vinna fyrir sig. Sérfræðingur um milliríkjasamninga segir hins vegar ekkert í samningnum koma á óvart. Hart hefur verið deilt um nokkur ákvæði í Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga, sem gert var opinbert í gær. Nokkrir lögfræðingar, ásamt stjórnarandstöðuþingmönnum, hafa lýst yfir gríðarmiklum efasemdum um samninginn og áhrif hans á íslenskan efnahag. Stjórnvöld kalla fullyrðingar þeirra hræðsluáróður. Í umræðum um samninginn á Alþingi í gærkvöldi voru stjórnarandstæðingar ákaflega harðorðir og kröfðust þess að Alþingi hafnaði samningnum. Stjórnarliðar sögðu Íslendinga ekkert val hafa. Þetta væri illskásta niðurstaða sem í boði væri. Jóhannes Þ. Skúlason hjá Indefence bendir til dæmis á ákvæði 7, 11 og 16,3 í samningnum. Í ákvæði ellefu eru taldar upp 11 leiðir sem Hollendingar hafa til að gjaldfella ríflega 200 milljarða samninginn samstundis. Meðal annars er þar kveðið á um að hægt sé að gjaldfella samninginn lendi Íslendingar í vanskilum með eitthvað annað lán. Einna harðast hefur verið tekist á um ákvæði 16,3. Jóhannes fullyrðir að með því séu allar eigur íslenska ríkisins lagðar að veði geti Íslendingar ekki borgað af láninu. Kæmi til þess gætu Hollendingar og Bretar krafist hvaða eigna íslenska ríkisins sem er upp í skuldina, með vísan til Lugano-samningsins svokallaða, sem er alþjóðréttarsamningur um fullnustu og aðfararhæfi sem sé í fullu gildi á Íslandi. Þetta aftekur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra með öllu, og segir að einungis sé um hefðbundið ákvæði að ræða sem finna megi í öllum samningum um milliríkjalán. Jóhannes Karl Sveinsson, lögfræðingur og sérfræðingur í milliríkjasamningum, er sammála Steingrími. Jóhannes Karl segir að ekkert í samningnum komi sérstaklega á óvart. Jóhannes Skúlason bendir jafnframt á ákvæði númer 7 í samningnum, eða svokallað jöfnunarákvæði. Í því sé kveðið á um að verði einhverjum kröfuhafa veitt greiðsla úr tryggingasjóði umfram tuttugu þúsund evra lágmarkið muni það sama ganga yfir alla kröfuhafa. Nú þegar undirbýr fjöldi hollenskra kröfuhafa mál á hendur Íslendingum og ætla að láta reyna á réttmæti neyðarlaganna, sem þeir telja að hafi mismunað kröfuhöfum milli landa. Jóhannes segir að ef þeir vinna mál sína eða að samið verði við þá geti skuld ríkisins hækkað gríðarlega á svipstundu.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Sjá meira