Sálrænn stuðningur við fólk sem kemur að slysum og áföllum 19. júní 2009 13:26 Á myndinni eru Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og formaður stjórnar SHS, Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands, og Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
Fólk sem kemur að slysum og öðrum alvarlegum atburðum sem vitni, tilkynnendur og þátttakendur í skyndihjálp, björgun og sálrænum stuðningi fær nú tilboð um sálrænan stuðning til að vinna úr reynslu sinni. Þetta er gert í samvinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Rauða kross Íslands fyrir hönd Hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og formaður stjórnar SHS, og Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, undirrituðu samkomulag um verkefnið í gær. Í tilkynningu um málið segir að fjöldi venjulegra borgara komi ár hvert að alvarlegum atburðum sem geta haft áhrif á andlega og líkamlega líðan þeirra í kjölfarið. „Áður en slökkvilið og lögregla koma að hefur venjulegt fólk iðulega lagt sig fram um að sinna bráðaaðgerðum til bjargar lífi og heilsu. Framlag þessa fólks er afar mikilvægt fyrir fórnarlömb og viðbragðsaðila. SHS og Rauði krossinn meta það að verðleikum en gera sér grein fyrir að þátttaka í atburðum af þessu tagi getur haft áhrif á líðan viðkomandi og hafa því tekið höndum saman um að bjóða sálrænan stuðning. Samstarfið varð til að frumkvæði og fyrir milligöngu einstaklings sem þótti þörf á því í ljósi eigin reynslu og annarra," segir einnig. Þá segir að handhæg kort með upplýsingum um hugsanlegar afleiðingar verði á næstunni sett í alla útkallsbíla SHS. Á kortinu er viðkomandi bent á að full ástæða geti verið til að viðra reynslu sína við góðan vin eða sjálfboðaliða Hjálparsímans 1717, en hann er gjaldfrjáls og opinn allan sólarhringinn. Einkunnarorð 1717 eru hlutleysi, skilningur, nafnleysi og trúnaður. Sjálfboðaliðar Hjálparsímans hafa þegar fengið sérstaka þjálfun til þess að taka við símtölum af þessu tagi. Rauði krossinn mun koma kortinu á framfæri við rekstraraðila sjúkraflutninga og aðra viðbragðsaðila utan höfuðborgarsvæðisins. Þegar starfsmenn SHS koma á vettvang þar sem alvarleg meiðsl eða sjúkdómar eiga í hlut leitast þeir við að átta sig á þátttöku vegfarenda í atvikinu. Þeir afhenda viðkomandi síðan kortið og hvetja þá til að hringja í 1717 og ræða atvikið. Í sérstökum tilvikum mun 1717 hafa frumkvæði að því að grennslast fyrir um líðan viðkomandi, samkvæmt beiðni SHS. SHS og Rauði krossinn hafa um árabil átt farsælt samstarf um sjúkraflutninga, viðbrögð við eldsvoðum og almannavarnir. Sjúkrabílar um allt land eru í eigu Rauða krossins en slökkvilið og fleiri annast rekstur þeirra. Deildir Rauða krossins veita fræðslu um skyndihjálp og sálrænan stuðning.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira