Latabæjarsýning fyrirhuguð á Íslandi 19. júní 2009 03:45 Glanni glæpur og Íþróttaálfurinn endurnýja kynni sín við íslenskt smáfólk þegar ný íslensk Latabæjarsýning verður sett upp á næsta ári.
Íslenskir aðdáendur Íþróttaálfsins og Sollu stirðu ættu að geta tekið gleði sína á ný. Því samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru forsvarsmenn Latabæjar nánast búnir að ákveða að setja upp Latabæjarleiksýningu á Íslandi á næsta ári. Tíu ár verða þá liðin síðan leiksýningin Glanni glæpur í Latabæ sló öll aðsóknarmet í Þjóðleikhúsinu. Latibær hóf í kjölfarið mikla útrás til Evrópu, Bandaríkjanna og nú síðast Suður-Ameríku þar sem þetta hugarfóstur Magnúsar Scheving hefur slegið rækilega í gegn. Latabæjarleiksýningar hafa nú verið settar upp bæði í Mexíkó og á Bretlandi og samkvæmt síðustu tölum höfðu yfir ein milljón aðgöngumiða verið seldir. Ekki liggur fyrir hvar og hvenær sýningin verður frumsýnd. Hins vegar má reikna með að sýningin verði mikill smellur enda selst Latabæjarvarningur nú sem aldrei fyrr. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er enn ekki komið á hreint hvort leitað verði að nýjum íslenskum Íþróttaálfi eða hvort Magnús Scheving sjálfur bregði sér í ljósbláa ofurhetjubúninginn. Þá hefur ekki fengist staðfest hvort Stefán Karl Stefánsson, sjálfur Glanni glæpur, muni endurtaka hlutverk sitt sem skúrkurinn ógurlegi. Fréttablaðið hafði samband við Hlyn Sigurðsson, upplýsingafulltrúa Latabæjar, en hann vildi hvorki játa né neita því að þetta væri satt.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Rassaumhirða karla í sókn Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira