Innlent

Aðgerð Geirs heppnaðist vel

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekkst í dag undir speglunaraðgerð á Háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að aðgerðin hafi heppnaðist vel að mati lækna.

Geir er væntanlegur heim til starfa síðar í vikunni. Ráðgert er að hann fari í framhaldsmeðferð eftir um það bil tvo mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×