Innlent

Stunginn í Kópavogi í nótt

Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu.
Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu.

Karlmaður var um tíma talinn í lífshættu eftir að hafa verið stunginn með hníf í Kópavogi í nótt. Hann var fluttur á slysadeild með stungusár víða um líkamann en er nú úr lífshættu.

Maðurinn var stunginn í húsi í Kópavogi en árásarmaðurinn er í haldi. Bæði hann og sá sem stunginn var eru af erlendum uppruna. Málið er til rannsóknar en ekki fengust frekari upplýsingar hjá lögreglu um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×