Innlent

Kröfu landeigenda hafnað

Héraðsdómur Austurlands staðfesti í gær úrskurð óbyggðanefndar um að hluti lands í svokallaðri Krepputungu á Mývatnsöræfum teljist þjóðlenda.

Landeigendur á bænum Brú kröfðust þess að úrskurður óbyggðanefndar yrði felldur úr gildi. Þeirri kröfu var hafnað. Héraðsdómur taldi gögn ekki sýna fram á að umdeild þjóðlenda teldist hluti af jörð Brúar. Heimildir um landnám á svæðinu séu ekki nægilega skýrar til að hægt sé að fullyrða um það.

Málskostnaður í málinu var felldur niður. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×