Innlent

Greiðslur lífeyrissjóðsins ekki skertar

Ekki þarf að skerða greiðslur úr Lífeyrissjóði verslunarmanna þrátt fyrir neikvæða afkomu sjóðsins í fyrra. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé vegna góðrar ávöxtunar undanfarin ár. Þrátt fyrir varúðarafskriftir skuldabréfa innlendra fyrirtækja sé meginhluti eigna sjóðsins bundinn í traustum eignum, sem ætla megi að gefi góða ávöxtun, þegar til lengri tíma er litið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×