Innlent

Gat veifað flugmönnum þotunnar

Svifvængsflugmaður sem nærri varð fyrir farþegaþotu yfir Bláfjöllum lýsti atvikinu svo að hann hefði getað veifað flugmönnum þotunnar. Rannsóknarnefnd flugslysa fer nú yfir ratsjárgögn vegna málsins.

Þetta er rannsakað sem alvarlegt flugatvik og er einstakt hérlendis, að sögn Þorkels Ágústssonar hjá Rannsóknarnefnd flugslysa. Sviffvængsflugmaðurinn hóf flugið í Kömbunum þar sem hann nýtti uppstreymi til að lyfta sér upp. Undir 3000 feta hæð þurfti hann ekki að tilkynna flug sitt en uppstreymið varð svo mikið að hann barst upp í 6000 fet og flaug þá í átt að Bláfjöllum en lét aldrei flugstjórnarmiðstöð vita, eins og honum bar í þessari hæð.

Flugmenn þotu Icelandair á leið til lendingar í Keflavík höfðu því ekki hugmynd um aðra flugumferð þegar þeir geystust yfir skíðasvæðið á 500 kílómetra hraða og mættu óvænt manni í sviffvæng í sömu hæð, sem þeir töldu vera fallhlífarstökkvara. Flugmenn þotunnar tilkynntu um atburðinn og Rannsóknarnefnd flugslysa hefur nú fengið bæði ratsjárgögn, sem sýna feril þotunnar, og GPS feril svifvængsins. Ekki liggur fyrir hve nálægt flugförin voru hvort öðru en svifvængsflugmaðurinn lýsti því þannig fyrir félögum sínum að hann hefði getað veifað flugmönnum þotunnar.






Tengdar fréttir

Flaug næstum því á fallhlífarstökkvara

Litlu munaði að farþegaþota Icelandair, sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli síðustu helgi, rækist á fallhlífarstökkvara.

Háloftaslys: Einstakt tilfelli

„Menn komast alveg upp í þriggja kílómetra hæð á svifvængnum," segir formaður Fisfélags Reykjavíkur, Ágúst Guðmundsson, en liðsmaður félagsins varð næstum fyrir farþegaþotu þar síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×