Innlent

Bílvelta í Ártúnsbrekkunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá vettvangi í Ártúnsbrekku.
Frá vettvangi í Ártúnsbrekku. Mynd/Anton Brink
Bílvelta varð í Ártúnsbrekkunni laust fyrir klukkan fimm í dag. Ökumaður var einn í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum var ökumaðurinn kominn út úr bílnum þegar að þeir komu á staðinn en sjúkrabifreið flutti hann á slysadeild til skoðunar. Maðurinn var á leið í austurátt þegar slysið varð og var hann að keyra aðrein upp á brú sem þar er.

Skömmu eftir að sjúkraflutningamenn fengu þetta útkall barst útkall í íbúðarhús í Hólahverfi í Breiðholti. Þar hafði kviknað í grilli en sjúkraflutningamenn beittu venjulegu heimilisslökkvitæki til að slökkva eldinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×