Innlent

Segir frjálsar strandveiðar fækka störfum

Hundrað og fimmtíu manns í beitingavinnu missa vinnuna á utanverðu Snæfellsnesi með frjálsum strandveiðum. Þetta fullyrðir skipstjóri smábáts á línuveiðum að muni gerast ef allir færa sig yfir í handfæraveiðar.

Sjávarútvegsráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir lagabreytingu um frjálsar handfæraveiðar. En smábátar veiða ekki bara á handfærarúllur. Margir eru á línuveiðum sem byggja á því að meðan til dæmis tveir menn eru á sjó vinna sex manns í landi fyrir bátinn við að beita línu í tugi bala fyrir næsta túr.

Frjálsar strandveiðar hrekja menn úr þessu útgerðarmynstri, að mati Heiðars Magnússonar, skipstjóra í Ólafsvík, sem segir sex manns í beitingu missa vinnuna hjá sér fari hann í strandveiðar. Ef allir línubátar á utanverðu nesinu færi sig yfir í skakið missi 150 manns vinnuna. Hann sjái ekki hvernig þetta eigi að leiða til atvinnusköpunar.

Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, telur erfitt að sjá að breytingin raski línuveiðum. Takmarkanir á fjölda veiðidaga og leyfilegum afla sjái til þess að frjálsar strandveiðar valdi engri byltingu í sjávarútvegi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×