Umferðarráð vill meiri löggæslu á vegum úti í sumar 26. maí 2009 11:53 MYND/Daníel
Umferðarráð hvetur stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á komandi sumri þar sem viðbúið er að fleiri ferðist innanlands í ár en oft áður. Þá varar ráðið við niðurskurði á fjármagni til Umferðarstofu. „Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér," segir í ályktun frá Umferðarráði. Bent er á að á tveimur undanförnum árum hafi átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafi þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 árum. „Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri. Engu að síður hefur alvarlega slösuðum fjölgað síðustu árin. Helstu ástæður eru of mikill umferðarhraði, ölvunarakstur og vanræksla á notkun bílbelta." Til þess að sporna við þessari þróun varar Umferðarráð við niðurskurði fjármagns til Umferðarstofu og segir afleiðinguna af því vera meðal annars skert umferðarfræðsla til barna og umferðaráróður í fjölmiðlum. Þá hvetur Umferðarráð stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á vegum landsins í sumar vegna aukinnar umferðar. „Einnig hvetur Umferðarráð alla þá sem leið eiga um vegi landsins að leggja sitt að mörkum svo takast megi að fækka alvarlegum umferðarslysum," segir einnig.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira