Innlent

Lamdi löggur og leitaði sér hjálpar

Tuttugu og eins árs karlmaður var dæmdur fyrir að slá lögregluþjón í andlitið, með þeim afleiðingum að hann bólgnaði á efri vör, hlaut mar á innanverða efri vör og brot á bitkannti tíu tanna. Árásin átti sér stað á skemmtistaðnum Dátanum á Seyðsfirði.

Þá var einnig dæmdur fyrir að hafa sparkað í fætur lögregluvarðstjóra, sem hafði afskipti af honum fyrir utan heimili mannsins vegna skyldustarfa sinna, með þeim afleiðingum að varðstjórinn féll til jarðar.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Hann var dæmdur af Héraðsdómi Austurlands í 45 daga fangelsi en refsingu er frestað og fellur hún niður haldi hann skilorð í tvö ár.

Þá var sérstaklega tekið mið af því að hann hefði leitað sér hjálpar vegna áfengisneyslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×