Hljómsveitir fá borgað í dilkum 1. október 2009 04:45 Grímur Atlason. Sveitarstjórinn í Búðardal stendur fyrir rokkhátíðinni Slátur.
Þær hljómsveitir sem taka þátt í rokkhátíðinni Slátur í Reiðhöllinni í Búðardal fá greitt fyrir spilamennskuna í dilkum. Hátíðin, sem verður haldin 23. október, er liður í haustfagnaði sauðfjárbænda. „Það hefur enginn neitað og allir vilja koma. Það finnst öllum stórkostlegt að fá borgað í dilkum,“ segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í Búðardal, sem skipuleggur hátíðina. „Menn fá sitt lítið af hverju af rollunni. Svið, bjúgu, læri, hrygg og súpukjöt, þannig að menn koma nestaðir heim.“ Grímur, sem er vanur tónleikahaldari, segist vera hættur að borga hljómsveitum í evrum og því hafi þessi leið verið valin. „Þetta er miklu stöndugra. Afurðaverð hefur farið lækkandi til bænda. Það er hagkvæmt að borga í dilkakjöti en kannski ekki fyrir bændurna sjálfa.“ Hljómsveitirnar sem troða upp á hátíðinni eru ekki af verri endanum, Retro Stefson, FM Belfast, Agent Fresco, Reykjavík!, Dr. Gunni, Rass og Grjóthrun, þar sem Grímur spilar einmitt á bassann. Hann er ekki í neinum vafa um að bændurnir kunni vel að meta reykvíska rokkið. „Þarna verður stofnfundur ungra bænda á Íslandi í Dölunum. Bændur eru miklir rokkarar, enda er Óttarr Proppé [liðsmaður Rass og Dr. Spock] hálfgerður Dalamaður. Svona verða menn eftir að hafa verið í Dölunum.“ Meðal annarra skemmtiatriða í haustfagnaði sauðfjárbænda eru Íslandsmeistaramótið í rúningi, hrútaþukl og fótboltamót þannig að menn hafa svo sannarlega úr nægu að moða. - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Sjá meira