Sýnir leikrit á heimilum annarra 16. júlí 2009 03:00 Fluttir inn Ævar Þór og Hlynur Páll færa sig inn í stofu velunnara síns.
Ævar Þór Benediktsson leiklistarnemi setur upp einleikinn Ellý, alltaf góð eftir Þorvald Þorsteinsson í heimahúsum. Ekki sínu reyndar, heldur hjá velunnurum sínum. Þorvaldur skrifaði verkið árið 1999 og lét það í hendur Ævars eftir að hafa séð hann í uppsetningu Menntaskólans á Akureyri á Hárinu. Ævar setti það fyrst upp í leikstjórn Skúla Gautasonar í hlöðunni á Litla-Garði sumarið 2003. „Verkið er tíu ára í ár og Þorvaldur er aðeins að kíkja á það í tilefni uppsetningarinnar,“ segir Ævar. Sjálfur vill hann koma að því að nýju með þeim verkfærum sem hann hefur viðað að sér í og með námi við Listaháskóla Íslands. Ævar fékk félaga sinn Hlyn Pál Pálsson til að leikstýra sér, en Hlynur er nýútskrifaður úr Fræðum og framkvæmd og lék Ævar í lokaverkefni hans. „Við erum báðir áfjáðir í að gera eitthvað sem kraftur er í.“ En um hvað er Ellý? „Verkið er um baráttuna fyrir því að vera góður strákur. Það er gluggi inn í líf þessa manns. Við fáum tækifæri til að líta inn í hálftíma eða svo.“ Hann segir því eðlilegast að setja verkið upp heima í stofu. „Við erum að leita að íbúðum og það stefnir í það að við munum rótera á milli tveggja til þriggja íbúða. Það eru furðu fáar lausar íbúðir á miðbæjarsvæðinu, þannig að ef einhver vill aðstoða þá væri það kærkomið.“ Hann segist ekki vilja leikhúsvæða íbúðirnar heldur komi fólk bara í heimsókn og setjist þar sem er sæti. En hann sýnir ekki heima hjá sjálfum sér. „Vegna þess að þetta er ekki ég, þessi maður. Hann á ekki heima í sama húsi og ég, allavega ekki í sömu íbúð.“ Verkið er sýnt á artFart 9.-13. ágúst og hægt verður að nálgast miða á artfart.is. - kbs
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira