Grunaður um að hafa skotið fimmtíu milljónum undan skatti Helga Anardóttir. skrifar 23. júní 2009 18:50 Hannes Smárason.
Hannes Smárason er grunaður um að hafa skotið fimmtíu milljónum undan árin 2006 og 2007, með því að láta fyrirtæki í hans eigu greiða fyrir persónuleg útgjöld, hvort heldur var ferðir með einkaþotum eða bíómiða. Einnig leikur grunur á að félag í eigu Hannesar hafi selt tvö hús við Fjölnisveg á undirverði til eiginkonunnar og hans sjálfs. Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit í eignum Hannesar Smárasonar að Fjölnisvegi 9 og 11 þann 3. júní síðastliðinn. Hannes kærði húsleitina til Héraðsdóms sem úrskurðaði í dag að hún hafði verið lögmæt. Rannsókn efnahagsbrotadeildar beinist að meintum auðgunar og skattalagabrotum vegna viðskipta FL group tengdum flugfélaginu Sterling og meintu broti gegn hlutafélagalögum. Þá hefur efnahagsbrotadeild einnig til rannsóknar meint skattalagabrot sem voru kærð til embættisins þann 11 maí síðastliðinn og var Hannes Smárason yfirheyrður af skattrannsóknarstjóra þann 13. maí síðastliðinn. Kæruna má rekja til rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins á FL Group. Við rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á FL GROUP hf. vegna rekstrarársins 2006 kom í ljós að kostnaður hefur verið færður á viðskiptamannareikning Hannesar hjá FL Group sem virðist vera einkakostnaður hans, kostnaður sem ekki var gefinn upp til skatts heldur greiddur af félagi í hans eigu. Samkvæmt bókhaldi félagsins eru færslurnar til að mynda merktar sem einkaferðir Unnar Sigurðardóttur konu Hannesar Smárasonar til Bandaríkjanna, veiðileiðsögn og bíómiðar Hannesar upp á rúmlega sautján milljónir króna. Þá er einnig til rannsóknar reikningur upp á tæplega 33 milljónir vegna flugferða Hannesar. Sá reikningur var greiddur af FI fjárfestingum jafnvel þótt allt bendi til þess að Hannes hafi notað flugvélina á eigin vegum. Þá leikur einnig grunur á vafasömum fasteignaviðskipti með Fjölnisveg 9 og ellefu þar sem þær voru seldar á undirverði frá Fjölnisvegi 9 ehf. til Hannesar og Unnar.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Fleiri fréttir Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Sjá meira