Bókhneigður innbrotsþjófur 23. júní 2009 03:30 egill örn Eftir sumarfögnuð í húsakynnum Forlagsins mætti menningarsinnaður innbrotsþjófur í svo annarlegu ástandi að lögreglan hélt að hann væri finnskur.fréttablaðið/arnþór „
Já, það er rétt. Það var brotist inn aðfaranótt sunnudags," segir Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins. Hann hlýtur að hafa verið menningarlega þenkjandi maðurinn sem braust inn í bókaútgáfuna Forlagið snemma að morgni sunnudags. Egill telur líklegt að hann hafi viljað ná sér í spennandi bók um hrunið eða góða kilju fyrir háttinn. En þegar þjófavarnakerfið gall við þá lét hann sig hverfa og var svo gripinn af lögreglu, sem brást skjótt við, fljótlega í kjölfarið. Var hann þá tómhentur og Egill saknar einskis. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var maðurinn í svo annarlegu ástandi að fyrst eftir að lögreglan hafði hendur í hári hans stóð hún í þeirri meiningu að innbrotsþjófurinn væri finnskur. „Þetta gerðist í kjölfar mikillar sumargleði Forlagsins sem var hér á laugardagskvöld. Gleðin var mikil. Höfundum var boðið og héldu menn fyrst að einhver hefði snúið til baka til að halda gleðinni áfram," segir Egill Örn furðu léttur í bragði miðað við að hafa orðið fyrir því, í hinu rólega hverfi þar sem Forlagið er við Bræðraborgarstíg, að fá í heimsókn þennan óboðna gest.- jbg
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira