Björgólfur Guðmundsson úrskurðaður gjaldþrota Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. júlí 2009 14:13 Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota. Mynd/ Pjetur.
Björgólfur Guðmundsson var úrskurðaður gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þetta fékk Visir.is staðfest frá Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Björgólfur óskaði sjálfur eftir gjaldþrotaskiptum samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Friðgeirssyni, talsmanni Björgólfsfeðga. Gjaldþrotið nemur tæpum 100 milljörðum „Í bréfi til Héraðsdóms Reykjavíkur gerir Björgólfur Guðmundsson grein fyrir því að frá ársbyrjun 2008 hafa persónulegar ábyrgðir og skuldbindingar hans u.þ.b. tvöfaldast vegna yfirtöku hans á ábyrgðum í þágu félaga honum tengdum og gengisfalls íslensku krónunnar og nema því nú alls um 96 milljörðum króna. Á sama tíma hafa eignir hans sem námu um 143 milljörðum króna horfið að mestu vegna yfirtöku ríkisins á hlutabréfum hans í Landsbankanum og Straumi og verulegraverðmætarýrnunar annarra fyrirtækja, sem hann var hluthafi í. Hreinar eignir hans námu í upphafi árs 2008 um 100 milljörðum króna og námu þá skuldir um 35% af heildareignum," segir í tilkynningu frá Ásgeiri Friðgeirssyni. Heldur húsinu sínu „Að gefnu tilefni vill Björgólfur upplýsa fjölmiðla um að heimili hans, sem orðið hefur fyrir árásum undanfarnar vikur, hefur ætíð verið í eigu konu hans en hún erfði húseignina frá foreldrum sínum sem reistu húsið fyrir röskri hálfri öld," segir í tilkynningunni
Mest lesið Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Innlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Fleiri fréttir Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent