Lennon-veisla í boði Yoko Ono 8. október 2009 02:30 Friðarsúluáformin kynnt 2006 Yoko, Sean, Stefán og Alfreð kynna Viðeyjarverkefni.FréttablaÐið/pjetur
Á föstudaginn, sem hefði orðið 69 ára afmælisdagur Johns Lennon, verður Friðarsúlan í Viðey tendruð í þriðja sinn. Yoko Ono kemur enn og aftur til landsins og býður ókeypis ferðir til Viðeyjar á föstudaginn og um næstu helgi. Einnig býður hún á tónleika til heiðurs John Lennon í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem hefjast kl. 22 á föstudagskvöld. Dagskráin hefst hins vegar klukkan 20, þegar sýnt verður beint frá tendrun Friðarsúlunnar. Því næst verður sýnd myndin The Bed-In, um friðarbaráttu þeirra hjóna, og svo sýndar stiklur úr væntanlegri heimildarmynd Ara Alexanders Ergis um tilurð Friðarsúlunnar, Imagine Peace Tower. Íslenska stórskotaliðið tekur þátt í minningartónleikunum. Þarna munu söngvarar eins og Krummi, KK, Egill Ólafsson, Páll Rósinkranz og Björgvin Halldórsson syngja lög úr söngbók Lennons, bæði Bítlalög og sólóefni. Yoko og Sean Lennon verða á svæðinu, svo Bítlaaðdáendur ættu ekki að missa af þessu kvöldi. Nú er bara að vona að fleiri hörmungar dynji ekki yfir þjóðina samfara Friðarsúlutendruninni, því fyrst logaði borgarstjórn og svo hrundi fjármálakerfið. Varla er þó við Yoko að sakast og hún hvetur fólk til að koma við í Naustinu í Viðey og skrifa á óskatré sitt.- drg
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Sjá meira