Eins og traktor á þjóðvegi 5. nóvember 2009 06:00 það skilja allir popptónlist Hljómsveitin Feldberg þreföld í roðinu. Mynd/tómas magnússon
Fyrsta plata Feldberg, Don‘t Be a Stranger, er komin út. Feldberg er samstarfsverkefni söngkonunnar Rósu Birgittu Ísfeld, sem syngur að auki með hljómsveitinni Sometime, og Einars Tönsberg, sem hefur gert það gott sem einyrkinn Eberg. Allt byrjaði þetta með grípandi popplagi í auglýsingu. „Það var vegna Kringluauglýsingar (lagið „Running Around“) sem við hittumst fyrst. Upp úr því fórum við að hittast reglulega til að sjá svona hvað kæmi út úr því,“ segir Einar. „Það var svo sem ekkert markmið í fyrstu en fljótlega varð ljóst að það yrði plata úr þessu,“ segir Rósa. Vinnuhraðinn er mikill þegar verið er að búa til lög í auglýsingar – „Það þarf alltaf helst að klára á morgun,“ segir Einar – en bandið gat leyft sér yfirlegu við plötugerðina: „Lögin fengu að malla. Að gera þessa plötu var dálítið eins og að keyra traktor eftir þjóðvegi.“ „Við vissum ekki alveg hvert þetta stefndi fyrr en tvö síðustu lögin urðu til. Þau eru lög númer eitt og tvö á plötunni. Þá límdist platan loksins saman og við urðum fullkomlega sátt,“ segir Rósa. Einar segir það miklu erfiðara að búa til popptónlist en svokallaða „erfiða tónlist“ – „Miklu erfiðara! Maður er berari. Allir geta gagnrýnt popptónlist réttilega því það skilja allir popp. Ef þú ert úti í einhverju horni með þína músík geturðu bara sagt að fólk skilji ekki tónlistina þína ef það fílar hana ekki. Annars ákváðum við nú bara að gera góð lög og pældum ekkert of mikið í því hvað við værum að gera.“ „Vinur minn sagði mér að það væri svipaður fílingur í okkur og í The Cardigans, en samt ekki endilega svipaðar lagasmíðar. Ég hef annars verið að hlusta ógeðslega mikið á Dylan upp á síðkastið og líka á nýju Emilíönuplötuna,“ segir Rósa. „Ég hef nú aldrei gefið út plötu nema einhver segi hana eins og Bítlana. Ætli maður sé ekki bara fastur í sínum gömlu áhrifavöldum,“ segir Einar. Feldberg-dúettinn segir að ýmislegt sé „farið að rúlla“ í útrásarbrasi hljómsveitarinnar en að auglýsingalega sé platan „mett“ (tvö lög af henni eru notuð í auglýsingum). Allt er í gangi: „Það er komið flott band í kringum þetta og öllum finnst bara ógeðslega gaman,“ segir Rósa. Útgáfutónleikarnir verða í Þjóðleikhúskjallaranum upp úr miðjum nóvember.drgunni@frettabladid.is Feldberg-umslagið.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira