Ömurleg umgengni útrásavíkings á Þingvöllum Karen Kjartansdóttir skrifar 5. nóvember 2009 19:28
Eitt brýnasta verkefni Þingvallanefndar í friðlandi þjóðgarðsins, er að taka á ömurlegri umgengni við hálfkarað sumarhús Ágústs Guðmundssonar, Bakkavararbróður, segir formaður nefndarinnar. Ruslið verður ekki fjarlægt í vetur. Til að koma húsinu fyrir þurfti að sprengja mörg tonn af klöpp við vatnið í burtu. Framkvæmdirnar vöktu athygli á sínum tíma enda þurfti að fara ófáar ferðir á þyrlu til og frá Þingvöllum með úrgang og steypu. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að engar framkvæmdir hafa verið við húsið frá því í bankahruninu í október 2008 en þau eru ófá tonnin af drasli sem liggja eftir auk þess sem mikið rusl mun hafa fokið af byggingarlóðinni og út á vatnið. Í stefnumörkun Þingvalla stendur að mikilvægt sé að raska ekki gróðri og dýralífi í vatninu frekar og gæta þess að framkvæmdir hafi ekki slík áhrif. Það er nokkuð ljóst að Ágúst hefur ekki orðið við þeim tilmælum. Álfheiður Ingadóttir formaður Þingvallanefndar vildi þó hvorki tjá sig um til hvaða viðurlaga yrði gripið vegna þessa né um það hvort til standi að rifta lóðaleigusamning við Ágúst en allir lóðasamningnar innan þjóðgarðsins renna út um mitt næsta ár. Samkvæmt fundi Þingvallanefndar stendur til að þá verði búið að endurskoða alla samningna í heild sinni sem og byggingaskilmála. Hún segir þetta verða meðal þeirra verka sem bíði nýs framkvæmdastjóra á svæðinu en eftir á að ráða í þá stöðu. Ekki náðist í Ágúst en samkvæmt talsmanni hans stendur til að hreinsa til á svæðinu með hækkandi sól.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira