Laddi laminn í klessu 9. júlí 2009 08:00 Laddi var bæði blár og marinn eftir slagsmálaatriði með þeim Stefáni Halli og Stefáni Karli. Stefán Hallur fékk síðan blómapott í hausinn með þeim afleiðingum að sauma þurfti þrjú spor og hér er gert að sárum hans. „
Ja, sko, ef maður ætti frí, til dæmis á sunnudaginn, þá kæmist ég ekkert í golf enda allur blár og marinn og með brákað rifbrein,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann fékk að finna fyrir höggþunga mótleikara síns, Stefáns Halls Stefánssonar, þegar verið var að taka upp slagsmálaatriði fyrir kvikmyndina Jóhannes í Kaldársseli, rétt fyrir utan Hafnarfjörð, á mánudaginn. Stefán lét höggin dynja á Ladda með þeim afleiðingum að allar golfhugleiðingar eru foknar út í veður og vind. „Mönnum hljóp kannski aðeins kapp í kinn,“ segir Laddi en skiptir síðan snögglega um gír. „Nei, nei, þetta er bara alvöru, ekkert feik. Ég vona bara að þetta sjáist vel þegar myndin verður sýnd í bíó.“ Laddi hefur reyndar lítið komist í golf þetta sumarið enda allt brjálað að gera hjá honum. Kvikmyndin Jóhannes verður í tökum næstu vikur og svo tekur annað verkefni við. „Vinnan er alveg búin að eyðileggja golfið fyrir manni, ég verð bara að hætta að vinna á sumrin, tek bara næst að mér hlutverk á veturna; í skauta-og skíðamyndum,“ segir Laddi en hann náði því meðal annars að komast í landslið öldunga á sínum tíma þótt hann vilji ekki, af sinni alkunnu hógværð, tjá sig mikið um það. „Nei, enda á maður ekki möguleika lengur, allir þessir gömlu meistarar eru komnir á þennan aldur, menn eins og Björgvin Þorsteinsson,“ en Björgvin þessi er einhver sigursælasti kylfingur íslenskrar golfsögu. En segja má að sveitungi Ladda úr Firðinum, Stefán Karl Stefánsson, hafi borgað rækilega fyrir barsmíðar Stefáns Halls. Því í atriðinu á Stefán að stoppa nafna sinn með því að brjóta blómapott á höfði hans. „Í handritinu stóð að ég ætti að kasta pottinum í bakið á honum og hann ætti að rotast en mér fannst það eitthvað asnalegt, menn rotast ekkert ef þeir fá eitthvað í bakið,“ segir Stefán sem spurði því leikmunadeildina hvort einhver hætta skapaðist af því ef umræddur blómapottur myndi brotna á haus Stefáns Halls. „Leikmunadeildin svaraði því til að þetta væru blómapottar úr sykri og því væri engin hætta á ferðum.“ Stefán gleymdi hins vegar að nefna að blómapotturinn var fullur af mold og graslauk og afleiðingarnar urðu því nokkuð blóðugar. „Það voru saumuð þrjú spor í höfuð hans, menn eru ekkert í neinum gannislag í Hafnarfirðinum,“ segir Stefán sem sjálfur slapp, án allra meiðsla frá þessu blóðuga atriði. „Sem er alveg í samræmi við karakterinn sem ég leik í myndinni, hann er svona sléttur og fínn og hálfgerð tepra.“
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira