Innlent

Samfylkingin þiggur ekki boð Framsóknar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Framsóknarflokkurinn býðst til að verja vinstri stjórn falli verði kosið fyrir 25. apríl. Formaður Vinstri grænna fagnar og segir flokkinn tilbúinn í ríkisstjórn. Samfylkingin segist ekki ræða við aðra á meðan hún er í stjórnarsamstarfi.

„Við bjóðumst til að leysa úr málum með þessum hætti og koma þannig á ríkisstjórn sem getur tekið á málum," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem í gær bauðst til að verja ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli á meðan kosningar yrðu undirbúnar. Það er háð því að kosið verði fyrir 25. apríl.

Sigmundur Davíð segir að í raun séu Framsóknarmenn að bjóðast til að höggva á hnútinn. Svo virðist sem ríkisstjórnin sé strand. „Einnig viljum við að boðað verði til stjórnlagaþings sem semji nýja stjórnarskrá og að svo verði gengið til kosninga ekki seinna en í lok apríl." Sigmundur Davíð segir einhug í þingflokki Framsóknarflokksins um að bjóða þessa leið. Hann segir ljóst að stór hluti samfylkingarmanna sé mjög ósáttur við ríkisstjórnarsamstarfið.

„Við erum náttúrulega í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum og því samstarfi hefur ekki verið slitið og því ekki tímabært að ræða þetta núna. Hins vegar er athyglisvert að þeir skuli lýsa því yfir og hafa á okkur mikið traust og við fögnum því," segir Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingar. Hann segir ekki verða rætt við aðra á meðan á núverandi samstarfi stendur.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, fagnar tilboði Framsóknarflokks. „Þetta samrýmist okkar meginkröfu um að kosið verði sem fyrst. Ég fagna því að Framsóknarflokkurinn taki af skarið með að hann vilji kosningar. Það hefur verið okkar meginkrafa allan tímann. Þetta endurspeglar þá skoðun flestra að kosningar séu óumflýjanlegar; það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær. Einhvern veginn þarf að haga stjórnun landsins á meðan og það er ágætt að afstaða Framsóknarflokks liggur fyrir."

„Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir stjórnina standa traustum fótum. Hann er ekki hissa á tilboði Framsóknar. „Mér finnst ekkert skrítið að nýr formaður í Framsóknarflokki vilji láta til sín taka með einhverjum hætti strax. Maður skilur þetta út frá því sjónarmiði. En það gildir sem ég sagði áðan að það væri mikið ábyrgðarleysi að ætla að stefna þjóðinni í kosningar á næstu vikum."

olav@frettabladid.is

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×