Sjö ungmenni handtekin fyrir að stela torfæruhjóli 22. janúar 2009 10:38
Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær vegna innbrots og þjófnaðar í Laugarási í Biskupstungum. Að sögn lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar ferðir manna á jeppabifreið í gróðurhúsahverfi í Laugarási rétt fyrir miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Lögreglumenn fóru þegar í stað á tveimur lögreglubifreiðum og fóru leiðir sem hugsanlegt væri að mennirnir gætu farið. Það bar þann árangur að lögreglumennirnir fundu jeppan á ferð skammt frá Laugarási. Í jeppanum voru fimm ungmenni sem sögðust vera þar í útsýnisferð. Ekkert þýfi var í bifreiðinni en þar sem grunur lék á að nokkru áður hafi kerra verið aftan í bifreiðinni var gerð leit að henni. Kerran fannst við Reykholt í Biskupstungum og í skurði rétt við fundust ýmis öryggisbúnaður sem notaður er við akstur torfæruhjóla. Ungmennin fimm voru handtekinn og færð í fangageymslu á meðan frumrannsókn fór fram. Í ljós kom síðar torfæruhjóli hafði verið stolið frá Laugarási og grunur um að ungmennin ættu þar hlut að máli. Tveir voru síðar handteknir vegna meintrar aðildar að málinu. Ungmennin sjö viðurkenndu við yfirheyrslur að hafa brotist inn í Laugarási og stolið torfæruhjólinu og ætlað að stela öðru til viðbótar en tókst ekki að gangsetja það. Kerrunni stálu þau þar sem hún var við Búrfellsveg í Grímsnesi. Ungmennin höfðu ætlað sér að brjótast inn í sumarbústaði í ferðinni en ekkert varð úr því þar sem þau voru stöðvuð áður en til þess kom.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira