Danskir víkingar allsberir í Peningagjá Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 17. júní 2009 14:23 „
Jú, þetta er rétt," segir Jóna Gunnarsdóttir, landvörður á Þingvöllum um uppákomu sem átti sér stað á Þingvöllum á mánudag. Samstarfskona Jónu kom þá að fjórum kviknöktum karlmönnum á sundi í Peningagjá. Voru þar á ferð danskir víkingar. Dönsku víkingarnir eru staddir hér á landi í tengslum við Víkingahátíðina í Hafnarfirði. Farið var með víkingana, sem eru átta talsins, hinn svokallaða gullna hring; Gullfoss, Geysi og á Þingvelli. Á þingvöllum fengu þeir að skoða peningagjá og eins og sönnum víkingum sæmir freistuðu gullin á botni gjáarinnar þeirra. Brugðu fjórir þeirra þá á það ráð að kasta af sér öllum herklæðum og stinga sér til sunds í gjánni á fötum keisarans. „Þetta er stranglega bannað," segir Jóna. „Þeir voru reknir upp úr en létu sér ekki segjast. Þegar landvörðurinn fór stungu þeir sér strax út í aftur." Hún segir þetta ekki vera algengt - „Sem betur fer." Vatnið í Peningagjá er enda ískyggilega kalt eða tvær til fórar gráður. „Kafarar þurfa meira að segja að fara í þurrbúning þegar þeir kafa í gjánni. Þeim nægir ekki að vera í blautbúning," segir Jóna. Hún segir þó að einstaka sinnum þurfi landverðir að hafa afskipti af ferðamönnum sem svipta sig klæðum og baða sig í Þingvallavatni, en aldrei í Peningagjá.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Innlent Fleiri fréttir Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Sjá meira