Glaðheimasölu verði rift vegna vanefnda 17. júní 2009 07:00 Kópavogsbær Mynd/GVA „
Bærinn hefur hvorki fengist til þess að gefa út yfirlýsingu um hvenær hann hyggist afhenda hið selda né gert ráðstafanir sem eru forsenda afhendingarinnar," segir í bréfi lögmanns Kaupangs eignarhaldsfélags til Kópavogsbæjar. Í bréfi lögmannsins, Gests Jónssonar, er boðuð riftun á kaupum Kaupangs á byggingarrétti og lóðaréttindum við Glaðheimaveg. Gengið var frá samningnum milli jóla og nýárs árið 2006. Í bréfi Gests segir að bærinn hafi átt að afhenda fyrstu lóðirnar byggingarhæfar í september 2007 og þær síðustu í desember 2008. Kaupangur keypti tvo þriðju hluta svæðisins og Smáratorg ehf. þriðjung. Samtals var söluverðið um 6,5 milljarðar króna. „Skyldi seljandi á sinn kostnað sjá um að fjarlægja þau mannvirki sem voru á lóðunum við gerð kaupsamningsins. Við afhendingu skyldu vera fyrir hendi götur, stígar og veitukerfi þannig að hægt væri að hefja byggingarframkvæmdir," segir í bréfi Gests sem kveður ekkert af þessu hafa verið gert heldur sé landið enn notað undir hesthúsabyggð. Tilraunir til að finna lausn með fulltrúum bæjarins hafi verið árangurslausar. Þá segir Gestur að Kaupangur hafi þegar greitt 500 milljónir króna vegna samningsins. Því hafi fylgt fjármögnunarkostnaður auk annarra gjalda auk þess sem lagt hafi verið í vinnu við undirbúning og hönnun. Samningum verði rift og bóta krafist leiði viðræður ekki til niðurstöðu. Bæjarráð Kópavogs segir hins vegar að Kaupangur beri ábyrgð á þeim töfum sem orðið hafi. „Kópavogsbær hefur gert það sem í hans valdi stendur til þess að klára skipulagsvinnuna," segir í svarbréfi sem Sigurjón Ingvason lögmaður skrifar Gesti Jónssyni fyrir hönd bæjarins. Sigurjón segir Kópavogsbæ enn aðeins hafa fengið greidda vel innan við tíu prósent af þeirri upphæð sem bænum beri að gatnagerðargjöldum meðtöldum. Kaupangur hafi þannig vanefnt samninginn. „Kópavogsbær mótmælir því að umbjóðandi yðar [Kaupangur] geti velt kostnaði sínum yfir á bæinn og sér í lagi er því mótmælt að bærinn beri nokkurn kostnað af þeirri áhættu sem umbjóðandi yðar tók við val á fjármögnunarleið," skrifar Stefán sem kveður bæinn þó til í viðræður um skil á lóðunum þannig að Kaupangur fái innborgun sína endurgreidda.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira