Byggja netþjónabú í Reykjanesbæ 8. júní 2009 05:00 Búið er að rífa allt innan úr tveimur gömlum skemmum. Íslenskir aðalverktakar sjá um framkvæmdirnar fyrir íslensk-bandaríska fyrirtækið Verne Holding.Fréttablaðið/hilmar bragi
Framkvæmdir eru hafnar við netþjónabú íslensk-bandaríska fyrirtækisins Verne Holding á Keflavíkurflugvelli. Búið er að rífa innan úr 25 þúsund fermetra skemmum á gamla varnarsvæðinu þannig að húsnæðið er nánast eingöngu fokhelt og er verið að grafa grunn fyrir varaaflsstöðar. Íslenskir aðalverktakar sjá um framkvæmdirnar. Þá hefur Hitaveita Suðurnesja verið að færa til lagnir á svæðinu. Búið er að samþykkja deiliskipulag á svæðinu og er nú verið að grafa fyrir varaaflstöðvum. Allt hefur verið rifið innan úr tveimur skemmum sem nota á í fyrsta áfanga. Verne Holding hefur tækifæri til að stækka við húsnæðið í síðari áföngum. Gríðarmiklum búnaði verður komið fyrir inni í húsunum. Skemmurnar eiga að hýsa öflug kæli- og varaaflskerfi, tölvubúnað, netþjóna og gagnageymslur fyrir alþjóðlega stórnotendur. Verne Holding mun útvega þeim örugga aðstöðu, orku og nettengingar. Meðal þeirra sem gætu notfært sér þessa þjónustu eru netveitur, fjármálafyrirtæki, smásölufyrirtæki og kvikmyndaver. Egill Sigmundsson, forstöðumaður hjá Hitaveitu Suðurnesja, segir að lóð Verne nái yfir gamlar götur. Undir þessum götum séu lagnir og þær hafi starfsmenn hitaveitunnar þurft að færa út fyrir lóð Verne. Í fyrstu áföngum muni Verne nýta gömlu lagnirnar. Erfitt er að fá upplýsingar um framkvæmdir Verne Group og framgang þeirra hér á landi, til dæmis það hversu margir starfsmenn koma að framkvæmdunum. Lisa Rhodes, talsmaður Verne Global í Bandaríkjunum, er sú eina sem má gefa upplýsingar. Hún staðfestir að framkvæmdirnar standi yfir en vill ekkert segja að öðru leyti. Verne kaupir 25 megavött af rafmagni af Landsvirkjun en félagið hefur samið við Farice um flutningsrými á Farice-1-sæstrengnum og Danice-strengnum, sem á að leggja, á samtals 160 gígabit á sekúndu. Fjárfesting félagsins hér á landi næstu fimm árin nemur tuttugu milljörðum króna. Stefnt er að því að starfsemi hefjist sumarið 2010 og er vonast til að 100 störf skapist. Verne Holding er í eigu Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, og bandaríska fjárfestingarsjóðsins General Catalyst Partners. ghs@frettabladid.is
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira