Innlent

Mótmæla skelfilegri þróun í öryggismálum sjómanna

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Félag skipstjórnarmanna mótmælir harðlega þeirri skelfilegu þróun sem átt hefur sér stað í öryggismálum sjómanna og skorar á stjórnvöld að sjá til þess öryggi sjófarenda verði tryggt. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við Vísi 1. júní að stofnunin nái ekki að fullmanna bakvaktir og að ekki væri hægt að tryggja að Landhelgisgæslan geti sent tvær þyrlur í loftið á sama tíma.

Í greinargerð með ályktun Félags skipsstjórnarmanna segir að frá því að efnahagskreppan skall á í október hafi dregið mjög úr þjónustu Landhelgisgæslunnar og þar af leiðandi sé öryggi sjófarenda við Ísland stórlega ógnað.

„Varðskip og loftför Landhelgisgæslunnar eru björgunartæki og sjúkraflutnings einingar sjómanna. Með fækkun í viðhaldsdeild og uppsögnum á áhöfnum sem taka gildi 1. júní og 1. september liggur fyrir að þjónusta við sjófarendur skerðist stórlega," segir í ályktuninni.

Þar segir jafnframt að þegar þegar uppsagnirnar taka gildi í september verði ekki mögulegt að hafa tvær þyrlur til taks nema 6 til 7 mánuði á ári, en það sé forsenda þess að þyrlur fari út á sjó. „Þetta þýðir að sjófarendur geta ekki vænst sjúkraflutnings- eða björgunarþjónustu með þyrlum nema 5-6 mánuði. Þetta er algjörlega óásættanleg meðferð og algjör vanvirða við sjómenn, ekki síst nú á tímum þegar fiskiveiðar eru ein tryggasta stoð íslensku þjóðarinnar."


Tengdar fréttir

Gæslan nær ekki að fullmanna bakvaktir

Ekki er hægt að tryggja að Landhelgisgæslan geti sent tvær þyrlur í loftið á sama tíma ef þörf krefur, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Gæslan hefur þurft að segja upp starfsfólki vegna niðurskurðar. Einn flugmaður lét af störfum á miðnætti í gær og ef fer sem horfir láta tveir af störfum í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×