Gæslan nær ekki að fullmanna bakvaktir Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. júní 2009 20:22 Það þurfti að kalla út fólk í fríi til að manna bakvakt hjá Gæslunni í nótt. /Guðmundur St. Valdimarsson
Ekki er hægt að tryggja að Landhelgisgæslan geti sent tvær þyrlur í loftið á sama tíma ef þörf krefur, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Gæslan hefur þurft að segja upp starfsfólki vegna niðurskurðar. Einn flugmaður lét af störfum á miðnætti í gær og ef fer sem horfir láta tveir af störfum í haust. Georg segir að þegar þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út í nótt til að sækja veika konu á skemmtiferðaskip um 85 sjómílur suðaustan af Vestmannaeyjum hafi þurft að manna bakvakt með starfsmönnum sem voru í fríi svo að áhöfnin sem var á vakt gæti sótt konuna. „Það náðist að manna en það byggist bara á því að mannskapurinn sem við eigum er hugsjónarmenn og þeim er það annt um þessa starfsemi að það náðist að manna hana með mönnum sem voru í fríi. Það er í sjálfu sér einstakt að menn skuli vera það vaknir og sofnir yfir þessari starfsemi að þeir skuli vera tilbúnir að koma utan að landi til að mæta á vakt," segir Georg í samtali við fréttastofu. Georg bendir á að verulegur niðurskurður hafi verið hjá Landhelgisgæslunni sem þurfi að takast á við. Hún sé því ekki eins vel mönnuð og æskilegt væri. „Það sem hefur gerst er það að við náum ekki að vera alla daga ársins allan sólarhringinn með tvær vaktir," segir Georg. Aðspurður hvort hægt yrði að kalla út tvær þyrlur í einu ef með þyrfti segir Georg að það sé vel hugsanlegt en ekki sé hægt að tryggja það. „Þetta er bara það einfalt að það eru sex áhafnir í gangi hjá okkur og með því að missa tvo flugmenn að þá erum við búin að missa eina áhöfn," segir Georg. Georg leggur jafnframt áherslu á að málið snúist ekki einungis um að manna áhöfn með flugmönnum heldur þurfi líka að manna áhöfnina með stýrimönnum og flugvirkjum.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira