Innlent

Lík rjúpnaskyttu fannst í Selgilsbökkum

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Frá leitinni að Trausta Gunnarssyni í nóvember.
Frá leitinni að Trausta Gunnarssyni í nóvember.

Í gær barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um líkfund í Selgilsbökkum sem eru við Þverá, rúman einn og hálfan kílómetra norðnorðaustur af bænum Fossnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Staðfest er að líkið er af Trausta Gunnarssyni sem leitað hefur verið að frá því 29. nóvember síðastliðinn er hann varð viðskila við tvo félaga sína á Skáldabúðaheiði þar sem þeir voru við rjúpnaveiðar. Um 10 kílómetrar eru frá þeim stað þar sem Trausti yfirgaf bifreið þeirra félaga og að þeim stað sem hann fannst.

Það voru ábúendur á Fossnesi sem fundu líkið er þeir voru á leið til að viðhalda girðingum við Þverá sem rennur með Selgilsbökkum. Lögreglan á Selfossi vill koma á framfæri þakklæti til björgunarsveitarmanna og allra þeirra sem komu að leitinni að Trausta heitnum.

Trausti var fæddur árið 1938 og var búsettur að Eskihlíð 12b í Reykjavík.






Tengdar fréttir

Engin von um að rjúppnaskyttan sé á lífi

Mörg hundruð björgunarsveitarmenn og sjálfboðaliðar viðs vegar að á landinu hafa í vikunni leitað að Trausta Gunnarssyni sem týndist við rjúpnaveiðar á Skáldabúðaheiði þann 29. nóvember s.l.

200 manns taka þátt í leitinni að rjúpnaskyttunni

Um 200 björgunarsveitamenn af mest öllu landinu eru nú við leit að rjúpnaskyttu sem saknað hefur verið í tæpa viku á Skáldabúðarheiði í Árnessýslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Leit að rjúpnaskyttunni hætt

Formlegri leit að Trausta Gunnarssyni sem týndist við rjúpnaveiðar á Skáldabúðaheiði þann 29. nóvember hefur verið hætt. Talið er að hann sé látinn. Um 200 björgunarsveitarmenn og sjálfboðaliðar viðsvegar að á landinu leituðu af Tryggva í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×