Telja banka beita sjónhverfingum 30. desember 2009 06:00 Hagsmunasamtök heimilanna minna á orð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að svigrúm sé til leiðréttingar skulda. Fréttablaðið/vilhelm
Allar leiðir fjármálastofnana til greiðslujöfnunar húsnæðislána og skuldaaðlögunar eru því marki brenndar að þær auka heildargreiðslubyrði heimilanna, fyrir utan leið Arion banka. Þetta er furðulegt í ljósi þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur upplýst að töluvert svigrúm sé fyrir verulega lækkun á greiðslu- og skuldabyrði heimilanna. Svo segja Hagsmunasamtök heimilanna í nýrri samantekt. Greiðslujöfnun húsnæðislána geti hækkað heildarkostnað lántaka um allt að 180 prósent á lánstíma. Í greinargerð samtakanna er fullyrt að Mark Flanagan, sendifulltrúi AGS, hafi sagt á fundi með félögum úr samtökunum að sjóðurinn vilji sjá allt svigrúm stóru bankanna til leiðréttingar nýtt. Svigrúmið nemi um 44 prósentum af verðmæti lánasafnanna. Hagsmunasamtökin telja bankana beita blekkingum. Lausnir fjármálastofnana bjóði upp á að mánaðarlegar greiðslur lækki mikið með því að greitt sé minna af höfuðstóli, en meira í vexti. Lækkunin vari í ákveðinn tíma en svo byrji bankarnir að „vinna upp hvern þann afslátt sem lántakar fá fyrstu árin“. Ef bankarnir skiluðu þeim afslætti sem þeir fengu frá gömlu bönkunum gætu þeir veitt fimmtíu prósenta afslátt af gengistryggðum lánum, og tuttugu prósenta afslátt af höfuðstóli verðtryggðra lána, segja samtökin. Bankarnir eigi að ganga mun lengra en þeir hafa gert. Þessar fjármálastofnanir hafi valdið hruni bankakerfisins og ætlist nú til þess að almenningur borgi brúsann. Samtökin krefjast þess að fyrirtækin axli sína ábyrgð og stuðli að sátt í samfélaginu. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira