Innlent

Hjólamessa björgunarsveitarmanna

Allar hjálparsveitir á höfuðborgarsvæðinu komu saman með fjórhjólin sín í dag á svokallaðri hjólamessu. Þetta er í fyrsta sinn sem slík uppákomu er haldin. Sveitirnar eiga fáeina tugi hjóla en aðeins eru um tvö ár síðan þær byrjuðu að nota þau í björgunarleiðöngrum. Dagurinn var notaður til að björgunarsveitarmenn gætu farið yfir öryggismál og borið saman bækur sínar á þessu sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×