Innlent

Þykir vænt um Geir

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir sagði að sér þætti vænt um Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra þegar hún tók við lyklum af forsætisráðuneytinu úr höndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í kvöld. Hún sagði Geir gæddann mörgum mannkostum og bað Þorgerði að skila kveðju til formannsins.

Líkt og komið hefur fram fór Geir utan til Hollands í dag til læknismeðferðar vegna veikinda sinna.

Jóhanna þakkað Þorgerði sömuleiðis fyrir samstarfið og sagði að ánægjulegt hefði verið að vinna með flokknum þó upp úr hefði slitnað.

Hún óskaði Þorgerði og flokki hennar velfarnaðar rétt áður en hún lyfti upp lyklunum að sínu nýja ráðuneyti með bros á vör.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×