Innlent

Hraðbanka stolið í Hveragerði

Brotist var inn í anddyri á verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði í nótt eða morgun. Þaðan var hraðbanka stolið en hann var numinn á brott í heilu lagi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið tiltölulega ný komið upp og er lögregla að rannsaka málið. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Vegfarandi sem hafði samband við Vísi sagði að lögegla væri búin að girða svæði af fyrir framan innganginn með gulum borða og lögreglumenn væru við vinnu.

Ekki er vitað hversu miklir peningar voru í hraðbankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×