Innlent

Ingibjörg Sólrún ekki í nýrri ríkisstjórn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar verður ekki ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Ingibjörg sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir á Hótel Borg að hún ætlaði nú að einbeita sér að sjálfri sér.

Hún væri ekki hætt í pólitík en ætlaði á næstu vikum að hlúa að sjálfri sér og síðan að flokknum. Hún hafi látið verkefnið í hendurnar á Jóhönnu Sigurðardóttur sem sé einn ástsælasti og reyndasti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Hún telur það farsæla lausn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×