Innlent

Stærsti stjórnmálaflokkur landsins

Vinstri hreyfingin - grænt framboð sem nú er á leið í ríkisstjórn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá í gærkvöldi. Um 30% þjóðarinnar fylgja Vinstri grænum að málum á meðan 24% kjósenda styðja Sjálfstæðisflokkinn sem fer út úr ríkisstjórn í dag.

Fylgi Samfylkingar hefur dalað og nýtur nú stuðnings tuttugu og tveggja prósenta kjósenda. Framsóknarflokkurinn er á hraðri uppleið og hefur tvöfaldað fylgi sitt á einum mánuði, hann er þó aðeins hálfdrættingur á við Vinstri græna en um 15% kjósenda eru tilbúin til að styðja Framsókn.

Frjálslyndi flokkurinn myndi ekki ná inn manni ef kosið yrði nú, aðeins 2,5% kjósenda styðja Frjálslynda. Könnunin var lögð fyrir óvenju marga að þessu sinni, alls um 3700 manns dagana 8. - 29. janúar. 64% svöruðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×