Birtíngur hótar að kæra Vilhjálm til siðanefndar 22. ágúst 2009 09:30 Vilhjálmur Vilhjálmsson
Framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Birtíngs, Elín G. Ragnarsdóttir, vill að lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson biðji blaðamenn sem starfa hjá útgáfunni afsökunar á þeim orðum sínum að þeir séu síbrotamenn á sviði ærumeiðinga og annarra brota á prentlögum. Elín hótar því í fréttatilkynningu að kæra ella Vilhjálm til siðanefndar lögmannafélagsins fyrir ýmis brot. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá fyrirhugaðri stefnu fjölskyldu úr Sandgerði á hendur ritstjóra Vikunnar, vegna ummæla viðmælanda Vikunnar um fjölskylduföðurinn og dóttur hans. Vilhjálmur rekur málið og sagðist meðal annars ætla að byggja á því að Birtíngur og starfsfólk útgáfunnar væru síbrotamenn á sviði ærumeiðinga og annarra brota á lögum um prentrétt. Í tilkynningunni frá Elínu segir að enginn starfsmaður Birtíngs hafi verið dæmdur tvisvar eða oftar fyrir meiðyrði í starfi sínu hjá félaginu. Því sé ósvífni að kalla þá síbrotamenn. Þá segir einnig að Vilhjálmur hafi ítrekað gerst brotlegur við siðareglur lögmannafélagsins, meðal annars með því að láta fyrirfarast að bjóða sættir áður en stefnt er. Biðjist Vilhjálmur ekki afsökunar hljóti að koma til álita að siðanefnd lögmannafélagsins fái að taka afstöðu til þess hvort Vilhjálmur sé sjálfur síbrotamaður. Vilhjálmur segir að honum hafi ekki borist nein krafa um afsökunarbeiðni frá Birtíngi og geti því að svo stöddu ekki tekið afstöðu til málsins. Hins vegar hafi hann ekkert sagt við Fréttablaðið í gær sem hann geti ekki staðið við. „Ég hef kannski misskilið eitthvað. Ég hélt að það væri Birtíngur sem skuldaði skjólstæðingum mínum afsökunarbeiðni," segir hann og vísar að öðru leyti í grein sem hann birtir í Fréttablaðinu í dag. - sh
Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira