Innlent

Gjaldeyrishöft torvelda fíkniefnainnflutning

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Mynd/Haraldur Jónasson
Talið er að gjaldeyrishöft geri innflytjendum fíkniefna erfitt fyrir þannig að framboðið anni ekki eftirspurn. Það veldur svo verðhækkun á götunni þannig að verð á flestum fíkniefnum hefur aldrei verið hærra en nú.

Þannig er grammið af kókaíni komið upp undir 15 þúsund krónur, samkvæmt verðkönnun SÁÁ meðal sjúklinga, sem lagðir eru inn á Vog til afeitrunar. Undanfarin misseri hefur það verið á bilinu tíu til tólf þúsund krónur þannig að þetta er mikil hækkun í prósentum talið. Þá er grammið af hassi komið upp í 2760 krónur sem líka er talsverð hækkun, amfetamíngrammið er komið í 5600 krónur, en það náði fyrst fimm þúsund króna markinu í desember. E pillurnar hafa líka hækkað, svo helstu tegundir séu nefndar.

Í áranna rás hafa fíkniefni verið talsvert dýrari hér á landi en á meginlandinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur munurinn aldrei verið meiri en nú, sem sömu heimildir rekja til gjaldeyrisskorts vegna gjaldeyrishafta.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×