Ökumaður missti stjórn á jeppa sínum í hálku á Geirsnefi í mynni Elliðaánna í Reykjavík laust fyrir klukkan ellelfu í morgun, með þeim afleiðingum að biíllinn hafnaði úti í sjó og tók að sökkva.
Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, komst út úr honum og upp á land af sjálfsdáðum. Honum varð ekki meint af, en kranabíll hífði bílinn á þurrt.