Segir Íslendinga sjálfa hafa skert fullveldið 20. júní 2009 07:00 Íslenski fáninn blaktir við hún.
Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur segir að umræðan um Icesave-samninginn ætti fyrst og fremst að snúast um það hvort þörf væri á því að gera þennan samning eða ekki. Umræðan um að Íslendingar afsali sér að einhverju leyti fullveldi með samningnum sé á misskilningi byggð því afsal á fullveldisrétti sé ekki afleiðing af samningnum heldur afleiðing hegðunar stjórnvalda, bankamanna og þeirra sem ofurskuldsettu sig. „Í þessari stöðu sem við erum í þá erum við ekki alveg fullvalda, það að þurfa að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skerðir okkar fullveldi," segir hann. „Það er alveg ljóst að okkar efnahagsstefna er ekki fullkomlega í höndum íslenskra stjórnvalda eins og sakir standa heldur í höndum þeirra sem veita okkur þetta lán. En það er ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem gerir það að verkum að við þurfum að taka þetta lán heldur okkar eigin hegðun. Það sama á við um Icesave-samninginn, það eru ekki lánveitendur sem skerða fullveldi okkar heldur hegðunin sem gerir það að verkum að við skulum þurfa að semja við þá. Það er að segja hegðun íslenskra stjórnvalda, sem áttu að hafa eftirlit með því sem var að gerast, bankamanna og einhverra þeirra sem skuldsettu sig of mikið. Það er þessi hegðun sem vegur að fullveldinu nú." Hann segir að umræðan ætti fyrst og fremst að snúast um það hvort við þurfum virkilega að taka lánið. „Þeir sem halda því fram að við ættum að fara með málið fyrir dómstóla hafa enn ekki sannfært mig, því ég veit ekki fyrir hvaða dómstól væri hægt að fara með málið. En það er ekki svo að mér hugnist lánið. Þetta eru náttúrlega gríðarlegar upphæðir og það er það sem vekur mér ugg fyrst og fremst. Að öðru leyti tel ég, eftir því sem ég hef heyrt, að þarna sé um eðlilegan lánasamning að ræða." Jakob Möller hæstaréttarlögmaður segist ekki geta séð að það styðjist við nein lögfræðileg rök að með samningnum séu Íslendingar að afsala sér neinum hluta sjálfstæðis síns eða fullveldis. „Það má ekki gleyma minnisblaði fyrrverandi ríkisstjórnar frá í október þar sem fjármálaráðherrann, fyrir hönd ríkisins, viðurkenndi skyldu Íslendinga til að greiða fyrir Icesave-skuldbindingarnar. Þáverandi forsætisráðherra lýsti því einnig yfir opinberlega að Íslendingar bæru ábyrgð á þeim. Þetta er vandamálið. Samningarnir nú eru um efndir á skuldbindingum Íslands," segir Jakob Möller.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Sjá meira