Pálína kann vel við sig á Gasasvæðinu 24. janúar 2009 06:30 Pálína Ásgeirsdóttir. „
Yfirleitt líður mér óskaplega vel inni á Gasa og fólkið þar er gott," segir Pálína Ásgeirsdóttir, sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Palestínu. Mikil samkennd sé meðal Gasabúa, sem taki erlendum hjálparstarfsmönnum fagnandi. Pálína hefur yfirumsjón með samskiptum við heilbrigðisstjórnvöld í Palestínu, bæði á Gasasvæðinu og á Vesturbakkanum. Hún heimsótti Gasa áður en Ísraelsmenn hurfu þaðan fyrr í mánuðinum og lenti meðal annars í sólarhringslangri árás þeirra. Þá gisti 120 manna stórfjölskylda hjá Rauða krossinum um nóttina. „En fólkið á Gasa er ýmsu vant og ótrúlega útsjónarsamt að bjarga sér. En það verður að segjast eins og er að það er ansi hart í ári," segir hún. Eymdin hafi ekki hafist með þriggja vikna stríðinu, því þar á undan hafi Ísraelsmenn lokað landamærum í eina 20 mánuði. „Það var ekkert eðlilegt líf hérna fyrir, því það var lítið til af vörum, nema algjörar nauðþurftir," segir hún. Sem dæmi um útsjónarsemi fólksins segir hún að þegar bílarnir urðu eldsneytislausir hafi þeim verið breytt og þeir gangi nú fyrir gasi. Verðlítil smámynt sé brædd niður og nýtt þar sem vantar málma. Nú hafi sum hverfin verið lögð í rúst og ýmsir innviðir samfélagsins skemmst, svo sem rafmagn, vatnsleiðslur og skolpræsi. „Gasabúar eru að horfast í augu við það sem hefur gerst, bæði að missa ástvini og heimili. Forsendan fyrir uppbyggingarstarfi er að landamærin opnist fyrir byggingarefni, mat og aðrar vörur, en forgangsatriði okkar er að styðja við um 50.000 manns sem eiga ekki þak yfir höfuðið og geta ekki fætt sig og klætt," segir hún. Rauði krossinn starfi mikið með palestínska Rauða hálfmánanum, en sjúkrahús þeirra og sjúkrabílar urðu fyrir sprengjum Ísraela í árásunum, og skemmdust mikið. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Fleiri fréttir Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Sjá meira