Innlent

Fundi stjórnar Samfylkingarinnar lokið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hélt nú skömmu fyrir klukkan fimm af heimili sínu og er talið að hún hafi verið á leið til fundar við Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins til að ræða um framhald stjórnarsamstarfsins.

Ingibjörg Sólrún hefur í allan dag fundað með helstu forystumönnum Samfylkingarinnar, meðal annars á fjörutíu manna fundi formanna aðildarfélaga Samfylkingarinnar og þingmanna. Þeim fundi lauk um tvöleytið en samkvæmt upplýsingum Stöðvar tvö voru þar mjög skiptar skoðanir um hvort halda ætti áfram samstarfinu við sjálfstæðismenn.

Ingibjörg Sólrún  fékk þó fullt umboð til að ákveða framhaldið. Athygli vakti að fjölmiðlum var ekki leyft að mynda fundarmenn og Ingibjörgu Sólrúnu var laumað út bakdyramegin, fjarri linsum myndatökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×