Innlent

Teflt með Hitler á Kjarvalsstöðum

Taflmaður í líki Adolfs Hitlers er meðal þess sem sjá má á óvenjulegri sýningu sem opnuð var á Kjarvalsstöðum í dag. Þar má sjá skákborð og taflmenn sem listamenn víða að úr heiminum hafa gert, einnig skáksett íslenskra listamanna, meðal annars útitaflmenn Jóns Gunnars Árnasonar. Taflmennirnir þykja afar frumlegir, og sumir jafnvel dónalegir, og endurspegla auðugt ímyndunarafl listamanna, sem sjá fyrir sér að tefla megi skák með jafn ólíkum hlutum eins og pizzasneiðum, búsáhöldum og skordýrum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×