Mikið fjallað um lopapeysurnar 24. janúar 2009 19:28 Kolbrún Björnsdóttir og Heimir Karlsson.
Lopavörusöfnun fyrir aldraða Breta sem Bítíð á Bylgjunni hratt af stað á dögunum hefur vakið töluverða athygli í Bretlandi og breskir miðlar fjallað ítarlega um hana. Söfnuninni lauk á þriðjudaginn og gámur með lopavörum kemur til Hull í Bretlandi á fimmtudaginn. Fjallað verður um söfnunina í vinsælum morgunþætti BBC eftir helgi. Breska blaðið Daily Express segir málið hafa kviknað út frá frétt blaðsins á dögunum um að hætta væri á að einn af hverjum tólf ellilífeyrisþegum í Bretlandi myndi deyja úr kulda í vetur. Breska blaðið Sun hefur eftir talsmanni félags ellilífeyrisþega á Bretlandseyjum að þetta sé mikið örlæti frá þjóð í fjárhagskröggum. Um leið sé þetta þungur dómur yfir stefnu bresku ríkisstjórnarinnar sem hafi ekki tekist að koma í veg fyrir að tvö hundruð og sextíu þúsund ellilífeyrisþegar í landinu hafi dáið úr kulda á síðustu tíu árum. Að auki hefur meðal annars verið fjallað um söfnunina á fréttavefnum Yahoo, MSN.com, Channel 4 auk útvarpsstöðvarinar Capital FM. Þá hefur þýska sjónvarpsstöðin ARD sett sig í samband við Heimi Karlsson og mun hitta hann og Kolbrúnu Björnsdóttir í Hull á fimmtudaginn. - Umfjöllun Daily Express - Umfjöllun Sun - Umfjöllun Capital FM
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira