Vill samstöðu um kröfu á sanngjarnri málsmeðferð Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. október 2009 10:34 Bjarni Benediktsson ræddi við forystumenn ríkisstjórnarinnar í dag. Mynd/ Anton. „
Þetta var ágætur fundur. Hann var mjög málefnalegur og þetta voru ágætis skoðanaskipti sem áttu sér stað á þessum fundi," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir fund í Stjórnarráðinu í dag. Hann, ásamt fulltrúum Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, funduðu með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í dag. Bjarni segir það vera augljóst af málsatvikum öllum að það eigi sér viðræður þessa dagana við Breta og Hollendinga. „Það ætti öllum að vera jafn ljóst að Bretar og Hollendingar hafa ekki fellt sig við alla fyrirvara þingsins við ríkisábyrgðinni," segir Bjarni. Hann segist að öðru leyti eiga erfitt með að tjá sig hvað hafi farið fram á fundinum því óskað hafi verið eftir trúnaði um það sem þar fór fram. Hann segist sjálfur hafa lagt á það áherslu að þegar væri í gildi lög um ríkisábyrgð. Þingið sé búið að fjalla um málið á Alþingi og ríkisstjórnin bundin af því máli. Rík skylda hvíli á ríkisstjórninni að halda á lofti þeim fyrirvörum sem búið er að samþykkja. Þá segist Bjarni telja að það sé mun líklegra til samstöðu meðal þjóðarinnar að halda fast við kröfu Íslendinga um sanngjarna málsmeðferð í Icesave málinu. Íslendingar geti með góðri samvisku sagt að þeir hafi gert miklu meira heldur en hægt er að ætlast til þess að leysa þetta mál.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira