Geta séð Björk í sturtu í Vesturbæjarlaug 7. júlí 2009 07:30 Páll Ásgeir strýkur hugsanlega þjóðarsálinni öfugt í bók þar sem hann gefur erlendum ferðamönnum ýmis ráð.
Óvíst er hvort fjallagarpurinn, blaðamaðurinn og rithöfundurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson myndi skrifa fyrir Íslendinga það sem hann lætur eftir sér í texta ætluðum erlendum túristum í bókinni The Real Iceland sem er nýútkomin. Páll Ásgeir var um helgina staddur á Hornströndum, utan kallfæris og því ekki hægt að inna hann eftir því. En í bókinni leiðir hann túrista í allan sannleika um Íslendinga, matarsiði þeirra og venjur og frægt fólk – þjóðarsálin í spaugilegu ljósi. Þannig segir Páll til dæmis frá því í bókinni að vilji ferðamenn sjá skýrt dæmi um það þegar smekkleysi og peningar fari saman þá sé Arnarnesið staðurinn. Þá er hætt við að fjölskyldu Bjarkar bregði í brún þegar þau uppgötva hvaða mynd er dregin af þeim í bókinni. Páll Ásgeir segir Hildi Rúnu Hauksdóttur vera sextíu ára gamlan hippa sem búi við Grettisgötu 40. „Þú ættir að knýja dyra og þykjast villtur. Nei, grín. Ekki gera það,“ skrifar Páll. Hann segir Íslendinga sem með sanni geti talist heimsfrægir rúmast í litlum japönskum bíl. Það væru þá Björk og Sigur Rós. Páll bendir ferðamönnum á að það sé ekki til siðs að umgangast frægt fólk öðru vísi en aðra óbreytta. En þó megi bregða á þetta ráð: „Heimili Bjarkar er jörðin en lögheimili hennar er við Ægisíðu 94. Þú getur tekið leigubíl og látið taka mynd af þér fyrir utan heimili hennar. Ef þú ert algerlega forfallinn. Uppkominn sonur Bjarkar, Sindri Eldon, sem Björk á með gítarleikaranum í Sugar Cubes – er sagður búa í húsinu stopult þó. Hann er lifandi eftirmynd móður sinnar en er þekktur fyrir stirt skap, svo ekki raska ró þeirra. Björk er oft á Íslandi og er sögð tíður gestur í Sundlaug Vesturbæjar. Þú gætir hugsanlega séð hana í sturtu þar,“ skrifar Páll – með þeim hætti að Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, hlýtur að velta því fyrir sér hvort Pál vanti ekki starf.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira